Brasilía mætir Króatíu í æfingaleik í Orlando í Bandaríkjunum á miðvikudaginn.
Carlo Ancelotti er þjálfari brasilíska liðsins en hann er mjög spenntur að mæta Luka Modric en þeir unnu lengi saman hjá Real Madrid.
Carlo Ancelotti er þjálfari brasilíska liðsins en hann er mjög spenntur að mæta Luka Modric en þeir unnu lengi saman hjá Real Madrid.
„Hann er einn besti leikmaður sem ég hef þjálfað. Mikill fagmaður, hann er einstakur, það er enginn leikmaður eins og Modric í heiminum," sagði Ancelotti.
Brasilía ætlar sér stóra hluti á HM næsta sumar en liðið tapaði gegn Frakklandi í síðasta leik.
„Við þurfum augljóslega að bæta okkur. Við erum með mjög skýra hugmynd um hvað við viljum gera á HM. Við þurfum að vera rólegir því þjálfarateymið og brasilíska fótboltasambandið er sannfært um að við erum á réttri leið," sagði Ancelotti.
Athugasemdir


