Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. október 2018 12:14
Elvar Geir Magnússon
Shaw búinn að gera nýjan samning við Man Utd
Shaw framlengir við Rauðu djöflana.
Shaw framlengir við Rauðu djöflana.
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw hefur samþykkt nýjan fimm ára samning við Manchester United og fær hann 150 þúsund pund í vikulaun.

Ánægja er með frammistöðu Shaw á tímabilinu en samningur hans var að fara að renna út næsta sumar.

Þessi 23 ára enski landsliðsmaður hefur verið fastamaður fyrir United á þessu tímabili.

Shaw gekk í raðir United frá Southampton fyrir 27 milljónir punda 2014.

United mætir Chelsea í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.
Athugasemdir
banner