Björn Daníel Sverrisson leikmaður FH var ekki í leikmannahópi liðsins er liðið vann Grindavík í kvöld vegna agabanns. Frá þessu greindi Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
FH-ingar unnu 2-1 sigur þar sem Atli Viðar Björnsson og Matthías Vilhjálmsson skoruðu mörk liðsins.
,,Hann var í agabanni," sagði Heimir í samtali við Fótbolta.net.
,,Það eru bara ákveðnar reglur í fótbolta og ef þú ætlar að ná árangri þá verður þú að fara eftir þeim, hann fór ekki eftir þeim og var þess vegna ekki í hóp í dag."
,,Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það hversu langt þetta bann er," sagði Heimir að lokum í samtali við Fótbolta.net.




