Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 14:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bergen
Borði með andliti Freys hjá hörðustu stuðningsmönnunum
Borðinn í stúkunni.
Borðinn í stúkunni.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það er gaman að sjá hvað Freyr Alexandersson er vinsæll hér í Bergen. Á heimavelli Brann má sjá borð með andliti hans.

Búið er að setja upp borðann þar sem hörðustu stuðningsmenn liðsins eru á vellinum, 'Brann ultras'.

Freyr hefur skapað sér miklar vinsældir hjá stuðningsmönnum Brann frá því hann tók við liðinu fyrir hálfu ári síðan. Persónuleiki hans hefur heillað þá upp úr skónum og hafa úrslitin verið góð.

Á þessum borða, sem fjallað var um hér á Fótbolta.net fyrir stuttu, mynd af Frey og textinn "Freydray I'm in Love" sem er tilvísun í frægt lag með The Cure.

Brann er að spila við Kristiansund núna klukkan 15:00 á íslenskum tíma en liðið er í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar fyrir leikinn.
Athugasemdir
banner