Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 16:59
Brynjar Ingi Erluson
Eggert Aron með stoðsendingu í sjöunda sigri Brann
Eggert Aron lagði upp mark í sigri Brann
Eggert Aron lagði upp mark í sigri Brann
Mynd: Brann
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann unnu sjöunda deildarleik sinn á tímabilinu er liðið vann Kristiansund, 4-2, í Bergen í dag.

Eggert Aron Guðmundsson var að sjálfsögðu á sínum stað í byrjunarliðinu og lagði upp annað mark liðsins á 14. mínútu leiksins en Brann bætti við þriðja stuttu síðar.

„Eru þetta bestu 20 mínútur í sögu Brann?“ spurði blaðamaður Netavisen í lýsingunni á leiknum.

Liðið gersamlega að yfirspila Kristiansund, sem náði að skora tvö mörk á tíu mínútum og gera þetta að leik, en Brann svaraði með marki Bard Finne undir lok hálfleiksins.

Staðan 4-2 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Engin mörk voru skoruð í þeim síðari.

Eggert fór af velli á 75. mínútu og náði Brann að sigla sjöunda deildarsigrinum heim. Liðið er í 2. sæti með 23 stig, þremur stigum frá toppliði Viking eftir ellefu leiki.

Ísak Snær Þorvaldsson spilaði síðustu mínúturnar í 1-1 jafntefli Rosenborg gegn KFUM Oslo. Rosenborg er í 3. sæti með 22 stig, en Stefán Ingi Sigurðarson tók út leikbann er Sandefjord tapaði fyrir Bryne, 3-2, á útivelli.

Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður hjá Sarpsborg undir lok leiks í dramatísku 1-1 jafntefli gegn Fredrikstad. Daniel Karlsbakk, liðsfélagi Sveins, skoraði jöfnunarmarkið á elleftu mínútu í uppbótartíma.

Sarpsborg er í 8. sæti með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner