Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nottingham Forest á eftir þremur leikmönnum Botafogo
Mynd: EPA
Nottingham Forest er í viðræðum við brasilíska félagið Botafogo um þrjá leikmenn liðsins.

Um er að ræða framherjann Igor Jesus, vinstri bakvörðinn Cuiabano og miðvörðinn Jair Cunha.

Jesus er 24 ára og er talinn einn mest spennandi framherji Suður Ameríku. Cuibano er 22 ára og gekk til liðs við Botafogo frá Gremio í fyrra. Þá er Cunha tvítugur og er U20 landsliðsmaður Brasilíu.

Sky Sports greindi frá þessu en þar kemur fram að Forest er í leit að vinstri bakverði, framliggjandi miðjumanni, vængmanni og framherja.
Athugasemdir
banner
banner