Joshua Kimmich, leikmaður Bayern München, hafði vonast eftir því að fá Florian Wirtz til félagsins frá Leverkusen í sumar. Hann hefu trú á því að liðsfélagi sinn í þýska landsliðinu hafi tekið ákvörðun um að fara annað eftir að Liverpool sýndi áhuga.
Liverpool er í viðræðum við Leverkusen en fyrr í dag var fjallað um að Leverkusen hefði hafnað öðru tilboði frá Liverpool. Leverkusen vill fá 150 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Liverpool er í viðræðum við Leverkusen en fyrr í dag var fjallað um að Leverkusen hefði hafnað öðru tilboði frá Liverpool. Leverkusen vill fá 150 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Fyrir nokkrum vikum virtist Wirtz annað hvort á leið til Manchester City eða Bayern en svo kom Liverpool inn í myndina og virðist langlíklegasta niðurstaðan sú að þessi sóknarsinnaði miðjumaður fari til Bítlaborgarinnar.
„Sem leikmaður FC Bayern, þá hefði ég augljóslega viljað að hann kæmi til okkar. Ég þekki hann úr landsliðinu. Ég veit hvernig er að spila með honum," sagði Kimmich í dag.
„Einbeitingin mín er núna á að hann sé liðsfélagi í landsliðinu. Það sem gerist hjá honum varðandi félagslið, þá held ég að hann sé nú þegar búinn að taka ákvörðun. Ég vona bara að það gerist sem hann vill að gerist."
„Hann er landsliðsmaður svo það er mikilvægt fyrir mig að hann taki góða ákvörðun fyrir sig. Auðvitað, þegar þú tekur ákvörðun, þá veistu ekki alltaf hvort hún sé rétt. En sama hvar hann endar, þá vona ég að hann velji leið sem hentar fyrir hann. Hann mun hafa sínar ástæður fyrir því hvers vegna hann velur það sem hann velur. Hvert sem hann fer, þá krosslegg ég fingurna fyrir hann," sagði Kimmihc.
Athugasemdir