
Manchester United, Eberechi Eze, Cody Gakpo og fleiri góð nöfn koma við sögu í Powerade-slúðurpakka dagsins. Hér fyrir neðan má sjá allt það helsta.
Manchester United hefur áhuga á því að fá Pedro Goncalves (26), leikmann Sporting og portúgalska landsliðsins til að fylla í skarð Bruno Fernandes (30) ef sá síðarnefndi ákveður að fara til Sádi-Arabíu í sumar. (Sunday Mirror)
Bayern München vill fá Eberechi Eze (26), leikmann Crystal Palace og enska landsliðsins eftir að hafa séð Michael Olise (23) ná frábærum árangri með liðinu á fyrsta tímabili hans með Bayern. Olise kom einmitt frá Palace á síðasta ári. (Football Insider)
Crystal Palace vonast til að Eze framlengi samning sinn við félagið þrátt fyrir áhuga Arsenal, Bayern, Tottenham og Manchester City. (The I)
Cody Gakpo (26), vængmaður Liverpool, og Kaoru Mitoma (28) hjá Brighton eru báðir á lista hjá Bayern. (Christian Falk)
Brasilíski sóknarmaðurinn Rodrygo (24) hefur tjáð Real Madrid að hann vilji vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga enskra úrvalsdeildarfélaga. (Marca)
Manchester City mun leggja fram opnunartilboð í Rayan Cherki (21), leikmann Lyon og franska U21 árs landsliðsins, í þessari viku. (Fabrizio Romano)
Cherki vill helst af öllu fara til Man City og vinna með Pep Guardiola. (Sky)
Arsenal mun fá samkeppni frá Ítalíumeisturum Napoli um sænska framherjann Viktor Gyökeres (26). Hann er á mála hjá Sporting í Portúgal. (Star on Sunday)
Framtíð Ange Postecoglou, stjóra Tottenham, liggur í lausu lofti, en félagið mun taka ákvörðun í næstu viku. Hann gæti verið látinn fara þrátt fyrir að hafa unnið Evrópudeildina. (Sunday Telegraph)
Simone Inzaghi, þjálfari Inter, hefur átt í viðræðum við Tottenham og Newcastle. (Talksport)
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City ætlar að bjóða Rodri (28) nýjan samning. (Sunday MIrror)
Barcelona mun aðeins fara á eftir Marcus Rashford (27), leikmanni Manchester United ef félaginu tekst ekki að ná samkomulagi við Liverpool um kólumbíska vængmaninn Luis Díaz (28). (Mundo Deportivo)
Newcastle gæti þurfti að kaupa James Trafford (22), markvörður Burnley og enska landsliðsins, á yfirsprengdu verði, en Scott Parker vill ólmur halda bestu leikmönnum sínum á næstu leiktíð. (Football Insider)
Tottenham er að íhuga hvort félagið eigi að gera félagaskipti Mathys Tel (20) varanleg eða ekki. (Sky Sports)
Arsenal ætlar ekki að kaupa Raheem Sterling (30) frá Chelsea, eftir slakan árangur kappans á þessu tímabili. Sterling eyddi tímabilinu á láni hjá Arsenal. (Express)
Marco Silva, stjóri Fulham, leiðir baráttuna um þjálfarastarf Juventus. Damien Comolli, verðandi yfirmaður íþróttamála hjá ítalska félaginu, er mikill aðdáandi Silva. (Sky)
Dirk Kuyt (44), fyrrum framherji Liverpool, er meðal þeirra sem Liverpool er að skoða fyrir aðstoðarþjálfarastöðuna. (Liverpool Echo)
Athugasemdir