Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 16:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Frábær leikmaður, gjörsamlega framúrskarandi"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Logi Lúðvíksson leysti stöðu miðvarðar hjá Breiðabliki gegn Víkingum í gær. Breiðablik vann sannfærandi 3-1 sigur á toppliði deildarinnar og minnkaði biliði á milli liðanna niður í eitt stig.

Blikar voru án þeirra Arnórs Gauta Jónssonar og Ásgeirs Helga Orrasonar. Halldór Árnason. þjálfari Breiðabliks, ákvað að veðja á Anton Loga við hlið Viktors Arnar Margeirssonar í hjarta varnarinnar. Anton er vanari því að spila inn á miðsvæðinu.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  1 Víkingur R.

„Anton Logi er frábær leikmaður, búinn að spila nokkar stöður í sumar og gert það vel. Við vissum að hann gæti spila hafsent, (var) gjörsamlega framúrskarandi og alvöru hrós á hann eins og aðra leikmenn liðsins," sagði þjálfarinn sem hrósaði öllum leikmönnum liðsins.

„Ágúst Orri var að spila sinn besta leik fyrir Breiðablik, þeir réðu ekkert við hann. Aron var að spila meiddur og á gjörsamlega frábæran leik. Það áttu allir frábæran dag," sagði Dóri í lok viðtalsins sem má nálgast hér að neðan.
Víkingar komu Dóra gríðarlega á óvart - „Hentaði ekki vel á móti okkur"
Athugasemdir
banner
banner
banner