Valur og Fram áttust við í loka leik 10.umferðar Bestu deildarinnar. Valur vann 2-1 og framundan er tveggja vikna landsleikjahlé. Srdjan Tufegdzic þjálfari Vals ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn á Hlíðarenda í kvöld.
„Mér líður mjög vel. Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur að halda áfram á safna stigum og vinna leiki og við gerðum þetta vel í dag."
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 Fram
„Það voru rosalega erfiðar aðstæður í dag fyrir alvöru fótboltaleik og það sást á báðum liðum. Það var mjög erfitt að ná einhverjum alvöru spilköflum með mikið flæði og vindurinn hafði mikið að segja í dag en við reynum eins mikið og við gátum, bæði með og á móti vindi og komumst oft í fínar stöður og þú verður líka stundum að taka aðstæður í að vinna leiki og uppskera og strákarnir löggðu miklar vinnu í þetta í kvöld og þá yfirleitt uppsker maður."
Fram byrjaði leikinn með vindi og Tufa var sáttur með að ná sað halda markinu hreinu í fyrri hálfleiknum.
„Mér fannst Fram fá eitt færi í fyrri hálfleiknum en svona heilt yfir erfitt fyrir bæði lið og við náðum kannski að nota þetta og vinna leikinn á endanum. Það var mikið hungur í liðinu og vilji til að fylgja eftir sigrunum undanfarna daga og það er svona það eina sem skiptir máli fyrir mig."
Þessi sigur var gríðarlega mikilvægur fyrir Val sem er núna tveimur stigum á efitr toppliði Víkings Reykjavík.
„Það var mikilvægt að vinna þennan leik en til þess að vera hreinskilinn við þig þá er ég aldrei búin að vera hugsa um töfluna og hvar við verðum staddir í töflunni þegar við förum inn í landsleikjarhlé. Mikilvægast í þessu er að hafa stöðugleika í okkar leik og sérstaklega varnarlega sem er búin að vera í undanförnum leikjum og ég vona innilega að við ætlum að nota pásuna til að gera sömu hluti eftir landsleikjahlé."
Nánar var rætt við Tufa í spilaranum hér að ofan.