Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   sun 01. júní 2025 23:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Hvað er hann að fara niður eins og bjáni?"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik lagði Víking í stórleik helgarinnar í Bestu deildinni á Kópavogsvelli í kvöld.

Víkingar voru ósáttir með þriðja mark Breiðabliks sem liðið skoraði á 52. mínútu en Sölvi Geir Ottesen sagði í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn að hann taldi að um rangstöðu væri að ræða og að Tobias Thomsen hafi brotið á Gunnari Vatnhamar.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  1 Víkingur R.

„Þú færð engin svör frá þeim (dómurum). Þeir bara lyfta öxlum og segja þér að fara aftur inn í boðvanginn," sagði Sölvi.

Kjartan Atli Kjartansson og Sigurbjörn Hreiðarsson fóru yfir atvikið í Subway tilþrifunum á Stöð 2 Sport.

„Hann á ekki að dæma á þetta. Hvað er hann að fara niður eins og bjáni? Svona sterkur maður grýtir sér ekkert niður nema hann sé að reyna það," sagði Bjössi.
Sölvi svekktur: Veit ekki hvað ég á að segja
Athugasemdir
banner
banner