Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi fór á kostum - 100. leikur Dags fyrir Orlando
Mynd: Orlando City
Inter Miami hefur unnið tvo leiki í röð eftir hræðilega byrjun á tímabilinu í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Liðið vann öruggan 5-1 sigur á Columbus Crew í gærkvöldi. Lionel Messi fór hamförum en hann kom að öllum mörkunum, skoraði tvennu og lagði upp þrjú.

Luis Suarez skoraði eitt af mörkum liðsins og Sergio Busquets lagði upp eitt.

Dagur Dan Þórhallsson kom inn á undir lokin þegar Orlando City tapaði 3-1 gegn Chicago Fire. Þetta var 100. leikur Dags fyrir Orlando en þetta er þriðja tímabilið hans hjá bandaríska liðinu.

Dagur Dan var kallaður inn í landsliðshópinn í gær fyrir tvo vináttuleiki gegn Skotlandi og Norður-Írlandi.


Athugasemdir
banner