„Frábær leikur af hálfu ÍBV. Við vorum töluvert betri í fyrri hálfleik og mér fannst við eiga að fá augljósa vítaspyrnu, það er nú ekki oft sem ég tjái mig um dómara. En já smá áhlaup hjá ÍA, við vissum að það myndi koma, en í heildina sanngjarn sigur", sagði Þorlákur Már sáttur með leik sinna manna eftir góðan 3-0 sigur á móti ÍA.
ÍBV hefur lent illa í meiðslum þetta sumarið og var Þorlákur spurður út í frammistöðu leikmanna sem þurftu að stíga upp í kjölfarið.
„Bara frábært, það er búið að tala mikið um þessa tvo leikmenn en við vorum án Bjarka í dag, sem er einn af bestu leikmönnum í deildinni að mínu mati. Ég er bara orðlaus yfir því hvernig við leystum þetta. Þetta lýsir því hversu sterkur hópur þetta er félagslega. Fótbolti er ekki bara geta leikmanna, heldur líka búningsklefinn og stemming í hópnum"

Lestu um leikinn: ÍA 0 - 3 ÍBV
Vicente Valor var í byrjunarliðinu í kvöld og átti flottan leik á miðjunni, en hann er að stíga upp úr álagsmeiðslum.
„Vicente er búinn að glíma við álagmeiðsi síðan hann kom í ÍBV. Þannig að við höfum þurft að fara sparlega með hann því miður. Hann var frábær í dag, en hann var aldrei að fara að endast 90 mínútur. Það er alltaf verið að tala um þessa tvo leikmenn, en það hafa verið mikil skakkaföll á okkur. Ég er bara þvílíkt sáttur og á ekki nógu góð orð til að lýsa því sem gerðist hér í dag"
Þetta var svakalegt, þetta mun rúlla alla vikuna, núna er frí í tvær vikur þannig að þetta mun rúlla bara þessa fríviku", sagði Láki að lokum hlæjandi um markið stórkostlega sem Sverrir skoraði frá miðju.
Athugasemdir