KA menn voru án þriggja leikmanna þegar liðið tók á móti Stjörnunni í 10. umferð Bestu deildarinnar í gær.
Þeir Viðar Örn Kjartannson, Dagur Ingi Valsson og Viðar Örn Kjartansson voru ekki í hópnum.
Þeir Viðar Örn Kjartannson, Dagur Ingi Valsson og Viðar Örn Kjartansson voru ekki í hópnum.
Lestu um leikinn: KA 1 - 1 Stjarnan
„Viðar fékk bara eitthvað aðeins aftan í læri í gær (laugardag), hann verður klár eftir viku - tíu daga," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir leikinn í gær.
„Dagur Ingi fékk í náran um daginn og ég reikna með að hann verði klár þegar við byrjum aftur."
Aðalmarkmaður KA, Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, hefur ekki spilað í tveimur síðustu tveimur leikjum. Hann er að bíða eftir að komast í myndatöku. Hann fann til í upphitun fyrir leikinn gegn Aftureldingu fyrir rúmri viku síðan og varð verri eftir leikinn.
Í hans stað hefur Daninn William Tönning staðið vaktina.
„Hann stendur sig vel, kemur seint inn, ungur markmaður og ég er virkilega ánægður með hann. Við höfum ekki tapað leik með hann í markinu. Hann hefur spilað í bikarnum og tvo í deild, flottur strákur og flottur karakter," sagði Haddi eftir leikin í gær.
Jökull býst við sínum mönnum aftur eftir hléið
Stjarnan var sömuleiðis án þriggja manna í gær.
Guðmundur Kristjánsson, Daníel Finns Matthíasson og Örvar Eggertsson voru ekki með Garðabæjarliðinu.
„Þeir ættu allir að verða klárir (í næsta leik)," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn. Viðtölin má nálgast hér að neðan.
Athugasemdir