Á 44. mínútu í leik Breiðabliks og Víkings í gær heyrðist hátt flaut úr flautu frá áhorfanda á Kópavogsvelli. Boltinn var í leik en sýnilega fipaði þetta leikmenn, og þá sérstaklega Víkinga.
Viktor Örn Margeirsson átti langa spyrnu fram völlinn frá vítateig Blika og á meðan boltinn var í loftinu var flautað. Varnarmenn Víkings, Gunnar Vatnhamar sérstaklega, urðu of rólegir, hegðuðu sér í örfáar sekúndur eins og það væri mögulega búið að flauta leikinn af. Blikar náðu boltanum nokkuð auðveldlega. Aron Bjarnason komst inn á vítateig Víkings og fann Kristin Steindórsson í mjög góðu færi, en skot hans fór í varnarmann.
„Kærulausir hérna Víkingarnir. Það var í alvöru eins og þeir væru sýndir hægt hérna," sagði Guðmundur Benediktsson sem lýsti leiknum á Stöð 2 Sport.
„Þetta var rosalega skrítið, við töluðum um ákefð áðan og þarna var svo sannarlega meiri ákefð hjá Blikunum að ná að klára þessa sókn heldur en Víkingum að reyna verjast henni," sagði Atli Viðar Björnsson sem aðstoðaði Gumma við lýsinguna. Flautið truflaði þá allavega ekki í lýsingunni og virðast þeir hafa misst af því.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 Víkingur R.
„Einhver aðili með flautu upp í stúku ákvað að flauta leikinn af og það voru margir sem keyptu þetta. Þetta var líka mjög vel gert hjá þessum aðila, mjög langt, hátt og gott flaut," skrifaði Sölvi Haraldsson sem textalýsti leiknum hér á Fótbolti.net.
Í kjölfarið mátti heyra tilkynningu í hátalarakerfi Breiðabliks, einhver skilaboð til áhorfanda vegna flautsins.
„Ég var í stúkunni og það kemur bara alveg eins og hálfleiks flaut. Ég hélt að Ívar væri að flauta af og hugsaði hvað Blikarnir væru að gera að halda leiknum áfram, það væri búið að flauta leikinn af. Svo fattar maður að leikurinn var ekkert búinn. Mig grunar að þetta hafi verið einhver í gömlu stúkunni eða fyrir utan girðinguna sem flautaði. Þetta var nákvæmlega eins og Ívar hefði flautað af, þetta var það hátt og snjallt," sagði Valur Gunnarsson í samtali við Fótbolta.net.
Valur var á vellinum í gær og það má geta þess að hann verður í Innkastinu þar sem tíunda umferðin í Bestu deildinni verður gerð upp.
Athugasemdir