Isco, miðjumaður Real Betis, er í landsliðshópi Spánar sem mætir Frakklandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar á fimmtudaginn.
Þessi 33 ára gamli Spánverji átti frábært tímabil með Betis sem fór alla leið í úrslit Sambandsdeildarinnar og fékk kallið í landsliðið í fyrsta sinn í sex ár.
Þessi 33 ára gamli Spánverji átti frábært tímabil með Betis sem fór alla leið í úrslit Sambandsdeildarinnar og fékk kallið í landsliðið í fyrsta sinn í sex ár.
Börnin hans eru ekki að missa sig mikið yfir þessu afreki pabba síns.
„Börnin mín eru spenntari að sjá mig spila með Lamine Yamal en að ég hafi snúið aftur í landsliðið," sagði Isco og hló.
Sigurvegarinn mætir annað hvort Þýskalandi eða Portúgal í úrslitum en leikur Þýskalands og Portúgal fer fram á miðvikudaginn.
Athugasemdir