Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valdimar fékk hrós frá Hadda - „Hann átti erfiðan vetur"
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
KA hefur verið á góðu skriði að undanförnu en liðið hefur nælt í átta stig úr síðustu fjórum leikjum.

Liðið gerði jafntefli gegn Stjörnunni í gær en hefði hæglega getað unnið leikinn þar sem liðð var mun betri aðilinn í seinni hálfleik eftir að Stjarnan missti Alex Þór Hauksson af velli með rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks.

Lestu um leikinn: KA 1 -  1 Stjarnan

Meiðslavandræði hafa verið á hópnum í upphafi mótsins en hinn 19 ára gamli Valdimar Logi Sævarsson er einn þeirra sem hefur verið að kljást við meiðsli. Hann kom sterkur inn af bekknum í gær en Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, hrósaði honum í viðtali við Vísi eftir leikinn.

„Hann bara gerir vel. Kemur inn og er góður á boltanum, með góðar sendingar, með nef fyrir svona góðum sendingum milli lína og inn í. Hann kom inn á og stóð sig vel. Ég er líka ánægður með að hann fór á fullu í návígin og var að vinna skallabolta, þannig bara frábært, hann er ungur og efnilegur strákur sem hefur spilað fullt af leikjum fyrir okkur og við vitum alveg hvað hann getur. Hann átti erfiðan vetur, meiðsli, en alltaf gaman að sjá unga stráka koma inn á og standa sig vel,“ sagði Haddi.
Haddi: Ef það er rétt sem þú segir þá því miður var það vitlaus ákvörðun
Athugasemdir