Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var á dögunum í skemmtilegu viðtali hjá Arnari Laufdal Arnarssyni í Grænu Stofunni. Þar ræddi Höskuldur um Breiðablik, feril sinn til þessa og ræddi m.a. um atvinnumennsku erlendis.
Höskuldur fór út sumarið 2017 og var hjá Halmstad í tæp tvö ár áður en hann sneri aftur í uppeldisfélagið. Frá því að hann kom til baka hefur hann verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar og var á síðasta tímabili valinn bestur.
Í vetur kom tilboð frá norska félaginu Brann en Höskuldur tók þá ákvörðun að vera áfram á Íslandi. Hann ræddi um það tilboð í viðtali við Fótbolta.net fyrr í vetur og hafði eftirfarandi að segja í þessu viðtali:
Höskuldur fór út sumarið 2017 og var hjá Halmstad í tæp tvö ár áður en hann sneri aftur í uppeldisfélagið. Frá því að hann kom til baka hefur hann verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar og var á síðasta tímabili valinn bestur.
Í vetur kom tilboð frá norska félaginu Brann en Höskuldur tók þá ákvörðun að vera áfram á Íslandi. Hann ræddi um það tilboð í viðtali við Fótbolta.net fyrr í vetur og hafði eftirfarandi að segja í þessu viðtali:
„Ég hef verið hreinskilinn með að það þyrfti að vera klúbbar í efri hillu í Skandinavíu eða eitthvað á meginlandinu sem myndu státa við Breiðabliki fyrir mér, fótboltalega og þýðingarlega. Það hefur ýmislegt komið upp. Brann svo tikkar í það box að vera í efstu hillu, topp fimm klúbbur í Skandinavíu. Það var eitthvað sem ég skoðaði vel, gerði af yfirvegun og í góðu samráði við alla hér."
„Ég var kominn í aðeins öðruvísi aðstæður, með svolítið stórt líf utan fótboltans líka, var að eignast minn fyrsta krakka fyrir átta vikum. Maður þurfti að taka inn í myndina að maður er ekki lengur einhver 20-25 ára sjomli sem getur gert það sem hann vill, konan er í góðri vinnu hérna heima og ég sjálfur með rekstur og ábyrgð þar. Þetta var aldrei að fara að verða einföld ákvörðun. Þetta var fríðindastaða sem ég var í. Það var mikill heiður að vera eftirsóttur af svona stórum klúbb á þessum tímapunkti, mikil viðurkenning fyrir fyrri störf. Þetta var valdeflandi atburðarás," segir Höskuldur sem ræddi aldrei beint við Frey Alexandersson, þjálfara Brann, í ferlinu.
Höskuldur var svo spurður almennt út í atvinnumennsku. Er möguleiki eftir tvö ár kannski að þú takir eitt tímabil erlendis?
„Eflaust, ég mun 100% vera opinn fyrir því. Ég veit alveg, og mun alveg vera með einhverja smá eftirsjá ef ég tala bara út frá mér persónulega... ég veit alveg að ég ætti að hafa verið úti með fullt af árum í atvinnumennsku á bakinu. Ég veit ég er með getuna til að standa mig á helvíti háu getustigi."
„En að því sögðu, það sem mér finnst mikilvægast hvar sem þú ert, er að þú gerir bara þá hluti sem þú ert að gera vel, og 'all in'. Eins og hér hjá Breiðabliki þá hefur það skilað sér í því að ég hef fengið þó 8 A-landsleiki og 30 Evrópuleiki. Ég væri ekkert að fá það í einhverju meðalliði í Skandinavíu. Maður hefur fengið að taka þátt í langri vegferð að hækka rána hérna. Allt í einu er staðallinn orðinn miklu hærri og við orðnir miklu samkeppnishæfari úti í heimi. Verkefni manns er fyrst og fremst að setja sér háleit markmið og það sé áskorun, sama hvar maður er."
„Það er ótrúlega þýðingarmikið og sjaldnast þannig að menn fái að fara í gegnum ferilinn sinn, keppa á háu stigi og spila í Evrópu, og gera það allt með félögum sínum. Það er einkar dýrmætt," segir Höskuldur sem hefur tvisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki.
Það má heyra í viðtalinu hvað Höskuldi er annt um félagið sitt og ræðir hann um að gefa til baka til samfélagsins sem ól hann upp. „Þetta er mjög dýrmætt og gefandi hlutverk að fá að vera leikmaður í Breiðabliki, og ekki sjálfsagt," sagði hann meðal annars. Hægt er að hlusta á viðtalið hér að neðan.
Höskuldur verður í eldlínunni í kvöld þegar hann leiðir sitt lið inn á Kópavogsvöll þegar Víkingur kemur í heimsókn í tíundu umferð Bestu deildarinnar. Sá leikur hefst klukkan 19:15.
Athugasemdir