Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 13:33
Brynjar Ingi Erluson
Viðræður Brentford og Liverpool komnar langt á veg
Mynd: EPA
Brentford og Liverpool eru að nálgast samkomulag um írska markvörðinn Caoimhin Kelleher en þetta kemur fram á Sky Sports í dag.

Kelleher er 26 ára gamall og verið varamarkvörður fyrir Alisson Becker síðustu ár.

Írinn hefur margoft sannað það að hann er allt of góður til þess að dúsa á bekknum og hefur Liverpool samþykkt að selja hann í sumar.

Sky segir að Brentford og Liverpool séu að færast nær samkomulagi um Kelleher, en Leeds og West Ham eru einnig sögð áhugasöm.

Mark Flekken, aðalmarkvörður Brentford, er á leið til Bayer Leverkusen í Þýskalandi, en búið er að ganga frá samkomulagi. Brentford vill ekki heimila söluna fyrr en félagið er búið að tryggja sér markvörð í stað hans.

Þetta eru ekkert sérstakar fréttir fyrir íslenska landsliðsmanninn Hákon Rafn Valdimarsson sem hefur verið varamarkvörður Brentford á tímabilinu.

Hákon spilaði fimm leiki í deild- og bikar með Brentford á tímabilinu og hélt hreinu tvisvar.
Athugasemdir
banner