Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikjahæsti leikmaður í sögu Atletico framlengir
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Koke mun taka slaginn með Atletico Madrid á næstu leiktíð.

Samningurinn hans var að renna út en það var ákvæði í samningnum hans um að framlengja um ár til viðbótar sem báðir aðilar komust að samkomulagi um að gera.

Koke er 33 ára gamall en hann er uppalinn hjá Atletico og er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins. Hann hefur leikið 681 leiki eða 181 leik meira en Adelardo sem spilaði með liðinu frá 1959–1976.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir liðið árið 2009 og hefur verið fastamaður í liðinu frá 2011. Hann lék 70 landsleiki fyrir hönd Spánar.
Athugasemdir
banner