Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umfjöllun
Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Blikar án fimm sem rotuðu Víkinga í úrslitaleiknum
Blikar unnu úrslitaleik síðasta Íslandsmóts, en fimm sem spiluðu þann leik verða ekki með í kvöld.
Blikar unnu úrslitaleik síðasta Íslandsmóts, en fimm sem spiluðu þann leik verða ekki með í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi byrjaði á bekknum gegn Vestra, við spáum því að hann komi inn í liðið í dag.
Gylfi byrjaði á bekknum gegn Vestra, við spáum því að hann komi inn í liðið í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Daniel Obbekjær er í líklegu byrjunarliði Blika.
Daniel Obbekjær er í líklegu byrjunarliði Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur snýr úr banni.
Höskuldur snýr úr banni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stígur Diljan byrjaði á bekknum gegn Vestra en við spáum því að hann byrji í kvöld.
Stígur Diljan byrjaði á bekknum gegn Vestra en við spáum því að hann byrji í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örn þarf að sýna betri frammistöðu en hann hefur gert í síðustu leikjum.
Viktor Örn þarf að sýna betri frammistöðu en hann hefur gert í síðustu leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örlygur skilar alltaf sínu og er hægt að sjá mjög margar sviðsmyndir þar sem hann byrjar hjá Víkigi, en hann er þó ekki í líklegu byrjunarliði.
Viktor Örlygur skilar alltaf sínu og er hægt að sjá mjög margar sviðsmyndir þar sem hann byrjar hjá Víkigi, en hann er þó ekki í líklegu byrjunarliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 í kvöld flautar Ívar Orri Kristjánsson stórleikinn á, en á Kópavogsvelli mætast Breiðablik og Víkingur, topplið síðustu ára, í tíundu umferð Bestu deildarinnar.

Það er ljóst að stór skörð eru höggvin í lið Breiðabliks. Nafn Ásgeirs Helga Orrasonar bættist á meiðslalistann á fimmtudaginn þegar hann fór meiddur af velli og þá fékk Arnór Gauti Jónsson að líta rauða spjaldið í tapleiknum gegn Skagamönnum og verður því í banni.

Fótbolti.net setti saman líkleg byrjunarlið liðanna í kvöld.

Ef horft er í byrjunarlið Breiðabliks frá sigurleiknum gegn Víkingi í úrslitaleik Íslandsmótsins í fyrra er ljóst að fimm leikmenn sem byrjuðu þann leik, sem Breiðablik vann virkilega sannfærandi, verða ekki með í kvöld. Ísak Snær Þorvaldsson er hjá Rosenborg í Noregi, Damir Muminovic er skráður í lið DPMM í Brúnei, Arnór Gauti Jónsson er í leikbanni og þeir Kristinn Jónsson og Davíð Ingvarsson eru á meiðslalistanum.

Þá er ekki víst hvort að sjötti maðurinn, Andri Rafn Yeoman, verði til taks í kvöld en hann meiddist á baki í upphitun gegn FH fyrir viku síðan og var ónotaður varamaður gegn ÍA. Við höfum samt Andra Rafn í líklegu byrjunarliði, veit nákvæmlega um hvað svona leikir snúast. Óli Valur Ómarsson, sem Breiðablik keypti gegn Sirius, fór meiddur af velli gegn ÍA, og gerum við ekki ráð fyrir honum í kvöld.

Blikar endurheimta hins vegar fyrirliðann sinn og leiðtoga, Höskuld Gunnlaugsson, en hann var í banni gegn ÍA. Með þá Ásgeir Helga og Arnór Gauta ekki til taks mun Halldór Árnason líklegast leita til Daniel Obbekjær í hjarta varnarinnar en Daninn leysti það hlutverk nokkuð vel síðasta sumar þegar á þurfti að halda. Anton Logi Lúðvíksson er einnig möguleiki í miðvörðinn við hlið Viktors Arnar Margeirssonar.

Kristinn Steindórsson og Kristófer Ingi Kristinsson gera einnig sterkt tilkall, gætu hvor um sig byrjað í stað Ágústs Orra sem fær þó kallið í þessu líklega byrjunarliði.

Víkingar náðu að rúlla vel á sínum leikmannahópi á fimmtudaginn þegar þeir heimsóttu Vestra í toppbaráttuslag síðustu umferðar. Mikið breytt lið Víkings vann 0-1 útisigur og er nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar.

Við spáum því að Víkingar muni fara í leikkerfi sem svipar til þess sem þeir notuðu gegn Val þar sem þeir voru með Helga Guðjónsson í vængbakverði gegn Jónatani Inga Jónssyni. Á morgun verður andstæðingurinn Aron Bjarnason sem sömuleiðis er frábær kantmaður.

Ef líklegt byrjunarlið er rétta verða þeir Viktor Örlygur Andrason, Almo (Ali Basem Almosawe), Nikolaj Hansen og Matthías Vilhjálmsson að gera sér það að góðu að byrja á bekknum.

Inn í þeirra stað koma þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Stígur Diljan Þórðarson, Karl Friðleifur Gunnarsson og Erlingur Agnarsson.

Umræðan fyrir leikinn
Blikar fengu verðskuldaða gagnrýni í Innkastinu þar sem níunda umferðin var gerð upp. Þar var talað um vöntun á leiðtogum þegar Höskuldur Gunnlaugsson væri ekki inn á vellinum og fengu varnarmenn liðsins mikla gagnrýni fyrir sína frammistöðu, og þá sérstaklega Viktor Örn Margeirsson sem hefur ekki verið upp á sitt besta í síðustu leikjum. Nýju leikmennirnir, Óli Valur, Valgeir og Anton Logi, fengu líka gagnrýni fyrir að hafa komið með of lítið að borðinu í síðustu leikjum. Spilið í kringum Anton var sagt of hægt og óskað eftir meira framlagi fram á við.

Víkingar náðu að rúlla á sínu liði, en hafi þrátt fyrir það verið mjög massífir og sannfærandi, og var talað um að þeir gætu komið sér í ansi þægilega stöðu á toppnum með sigri í þessum leik.

Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær var hitað upp fyrir leikinn.

„Þetta verður bilaður leikur, það er að duga eða drepast fyrir Breiðablik," sagði Elvar Geir.

„Sammála því, þó að við séum í 10. umferð, ekki hálfnuð með mótin, þá er sjö stiga munur mjög mikið. Ef þetta væri FH 2005 myndi ég segja að mótið væri búið eftir tíu umferðir með sjö stiga forskot, ég er ekki alveg með sömu tilfinningu fyrir neinu liði í dag, en Víkingur er samt nálægt því. Þetta væri risastórt högg fyrir Blika ef þeir tapa þessum leik, þetta væri þá þriðja tap liðsins í röð," sagði Valur Gunnars.

Leikurinn í kvöld er klárlega leikur til að mæta á, veitingarnar í boði á Kópavogsvelli hafa verið til fyrirmyndar og mjög gaman að koma á völlinn. Valur hélt áfram að ræða leikinn sjálfan:

„Víkingar róteruðu liðinu vel í síðasta leik og tóku iðnaðarsigur á móti Vestra á útivelli. Ef ég væri að stjórna Víkingi þá myndi ég keyra á þetta Blikalið. Ég trúi samt ekki öðru en að Blikar rífi sig upp og sýni okkur alvöru frammistöðu, þeir verða að svara, ef ekki núna hvenær þá?"

Stöðutöfluna má sjá hér að neðan og einnig er hægt að nálgast upptöku af Innkastinu og Útvarpsþættinum.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner
banner