
Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 23 ára og yngri tapaði gegn Skotlandi í seinni æfingaleik liðanna í Skotlandi í dag.
Liðin spiluðu á fimmtudaginn en þar skildu liðin jöfn, 2-2.
Liðin spiluðu á fimmtudaginn en þar skildu liðin jöfn, 2-2.
Íslenska liðið mætti því skoska aftur í dag en Skotland vann 2-1. Bergdís Sveinsdóttir, leikmaður Víkings, skoraði mark Íslands beint úr hornspyrnu.
Byrjunarlið Íslands: Tinna Brá Magnúsdóttir (M), Birna Kristín Björnsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir, Ísabella Sara Tryggvadóttiir, Elísa Lana Sigurjónsdóttir, Birta Georgsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir, Diljá Ýr Zomers, Mist Fundadóttir, Bergdís Sveinsdóttir.
Athugasemdir