Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætla að bjóða eftirsóttum Vieira nýjan samning
Mynd: EPA
Það er mikil óvissa um framtíð Patrick Vieira í stjórastól Genoa.

Vieira tók við liðinu í nóvember og liðið vann sjö leiki, gerði átta jafntefli og tapaði fimm leikjum undir hans stjórn.

Fabrizio Romano segir að Vieira sé eftirsóttur en tvö ónefnd ítölsk félög hafa haft samband við hann á undanförnum vikum.

Hann skrifaði undir tveggja ára samning í nóvember en Genoa er tilbúið að framlengja samninginn við hann.
Athugasemdir
banner