Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 12:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
De Zerbi og Fabregas orðaðir við Inter
Tekur Fabregas við Inter?
Tekur Fabregas við Inter?
Mynd: EPA
Líkur eru á því að Simone Inzaghi, stjóri Inter, semji við Al Hilal og taki við sem stjóri sádi-arabíska liðsins.

Samkvæmt heimildum Sky á Ítalíu er Inter með þá Cesc Fabregas, stjóra Como, og Robert De Zerbi sem er stjóri Marseille. Þriðji kosturinn er svo Cristian Chivu, stjóri Parma, sem er fyrrum leikmaður Inter.

Inter vill halda Inzaghi innan sinna raðar og mun funda með honum á morgun til að ræða hans framtíð.

Ef Inzaghi fer til Sádi þá var hans lokaleikur með Inter 5-0 tap gegn PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Hann vann ítölsku deildina á síðasta tímabili, bikarinn tvö tímabil þar á undan og hefur komið Inter í tvígang í úrslitaleik í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner