Heimild: Fotbollskanalen
Arnór Sigurðsson hefur verið afskaplega óheppinn eftir að hann gekk til liðs við Malmö í febrúar. Hann hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum en meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Hann er nú aftur meiddur en hann meiddist á æfingu liðsins í gær.
Hann er nú aftur meiddur en hann meiddist á æfingu liðsins í gær.
Hann var að skjóta á markið undir lok æfingarinnar og haltraði af velli í kjölfarið. Um er að ræða ökklameiðsli.
Malmö mætir Hacken í hádeginu í dag og Arnór verður að öllum líkindum ekki með.
Athugasemdir