Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eiga sjö fulltrúa í liði ársins í Meistaradeild Evrópu þetta tímabilið.
PSG varði Evrópumeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og annað franska liðið á eftir Marseille til að ná þessu magnaða afreki.
Ousmane Démbélé, Désiré Doué, Nuno Mendes, Marquinhos, Vitinha, Achraf Hakimi og Gianluigi Donnarumma eru allir í liði ársins.
Barcelona fékk tvo fulltrúa í þeim Raphinha og Lamine Yamal á meðan Arsenal og Inter fengu einn á haus. Declan Rice er fulltrúi Arsenal eftir frábæra frammistöðu hans í keppninni og þá er Alessandro Bastoni, miðvörður Inter, í vörninni.
Dembélé var besti maður keppninnar í ár og hlaut Doué verðlaunin sem efnilegasti leikmaðurinn.
???????? UEFA's Technical Observer Group has selected its 2024/25 UEFA Champions League Team of the Season...#UCL pic.twitter.com/sxWvBWwISk
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) June 1, 2025
Athugasemdir