
'Þetta er bara fáránlegt. Leik eftir leik eftir leik sama trío, sami dómari og ég bara spyr hvað á þetta að ganga lengi?'
Vestramenn voru ósáttir við dómgæsluna í leik liðsins gegn KR í gær og létu þá óánægju sína í ljós eftir leikinn. Samúel Samúelsson, formaður Vestra, sagði í færslu á X að KR hefði þurft hjálp frá gula liðinu til að vinna leikinn og Davíð Smári Lamude, þjálfari liðsins, fór mikinn í viðtölum eftir leik.
Vestramenn voru aðallega ósattir við rangstöðudóm í stöðunni 1-0 fyrir Vestra þar sem Daði Berg Jónsson var ranglega dæmdur rangstæður. Twana Khalid Ahmed var með flautuna og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage var aðstoðardómari tvö sem lyfti flagginu áður en rangstaðan var dæmd.
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín í dag en hann starfar við dómaramál hjá KSÍ. Hann var fyrst spurður út í færslu Samúels.
Vestramenn voru aðallega ósattir við rangstöðudóm í stöðunni 1-0 fyrir Vestra þar sem Daði Berg Jónsson var ranglega dæmdur rangstæður. Twana Khalid Ahmed var með flautuna og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage var aðstoðardómari tvö sem lyfti flagginu áður en rangstaðan var dæmd.
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín í dag en hann starfar við dómaramál hjá KSÍ. Hann var fyrst spurður út í færslu Samúels.
Lestu um leikinn: KR 2 - 1 Vestri
Ekki spennandi þegar samstarfsfélagar tala svona
„KR þurfti hjálp frá gula liðinu í dag! Algjörlega óboðlegt að það sjá þetta allir nema gaurinn sem á að dæma þetta!" skrifaði Sammi.
„Mér finnst það nú ekkert sérstaklega spennandi, mér finnst alltaf leiðinlegt þegar koma svona ummæli frá mönnum í hreyfingunni. Kemur þetta ekki bara um leið og leikurinn er búinn? Svona heilt yfir finnst mér ekki nú sérstaklega spennandi þegar samstarfsfélagar okkar eru að tala svona," segir Þóroddur.
Skilur ekki hvað Davíð er að fara með sínum ummælum
Þá að ummælum Davíðs Smára. „Það eru einhverjir hérna sem virðast geta átt ömurlegar frammistöður leik eftir leik sem kostar okkur sigurinn hér í dag. Þetta er bara fáránlegt. Leik eftir leik eftir leik sama trío, sami dómari og ég bara spyr hvað á þetta að ganga lengi? Fyrir leik er maður með hnút í maganum og fyrir hvern einasta leik sem hann dæmir er maður með hnút í maganum. Ef leikmaður hjá mér spilar ekki vel þá byrjar hann ekki næsta leik og fyrir örfáum dögum er ömurleg frammistaða og það er aftur hér í dag, stórt móment sem í raun og veru sem kemur í veg fyrir að við siglum þessum sigri heim. Þetta er bara ekki hægt, ég er gríðarlega ósáttur. Núna horfa einhverjir á mig og hugsa að hann sé að væla yfir hinu og þessu, ég myndi ekki vekja athygli á þessu nema út af því að þetta er bara búið að gerast svo oft, og ekki bara fyrir okkur, heldur fleiri lið. Þetta er erfitt og pirrandi," sagði Davíð Smári við Fótbolta.net eftir leikinn.
Hvað finnst Þóroddi?
„Ég bara skil þetta ekki, ég skil ekki hvað hann er að fara með þessu. Það er okkar skoðun sem eru að halda utan um dómaramálin að dómgæslan í Bestu deild karla hafi farið mjög vel af stað í upphafi móts. Það eru vissulega ákvarðanir í gær sem við erum ekki ánægðir með, hvorki við sem stöndum fyrir utan og erum að halda utan um þetta né dómararnir sem taka þessar ákvarðanir. Þetta er mjög erfitt fyrir þá. Það er einu sinni þannig, og það skilja það einhvern veginn allir, að við erum partur af leiknum og við gerum mistök, þangað til að við gerum mistökin, þá er oft rosalega erfitt að skilja það. Ég sýni því fullan skilning."
„En ummæli Davíðs í gær, ég skil ekki hvert hann er að fara. Það er ekki eins og hann sé búinn að vera með sama tríóið leik eftir leik eftir leik í leikjum hjá sér. Stærstu mistökin sem verða í þessum leik í gær er þessi rangstöðu ákvörðun sem er risastór og við gerum ekki lítið úr því. En það er aðstoðardómarinn sem tekur þá ákvörðun. Ef hann er að tala um dómarann í leiknum, þá held ég að ég sé að fara rétt með að þetta sé annar leikurinn sem hann dæmir hjá Vestra í sumar. Hinn leikurinn var að ég held Vestri-FH sem Vestri vann, og að mínu mati var dómgæslan í þeim leik mjög góð. Þannig mér fannst hann svolítið tala í gær eins og dómgæslan í sumar væri búin að vera hræðilegt og ég verð bara að fá að vera ósammála því, því mér finnst dómgæslan heilt yfir í upphafi móts hafa verið virkilega góð."
Þarf meira en ein stór mistök svo dómari sé settur á bekkinn
Það var stórt atvik í leik Breiðabliks og ÍA á fimmtudaginn þar sem margir eru á því að Ómar Björn Stefánsson, leikmaður ÍA, hefði átt að fá rautt spjald fyrir. Ómar Björn sveiflaði hönd sinni aftur fyrir sig til að losa sig frá Valgeiri Valgeirssyni og upphandleggur hans fór í andlitið á Valgeiri, og gult spjald varð niðurstaðan. Sami dómari dæmdi þann leik og leikinn í Laugardalnum gær.
Skoðuðuð þið þetta atvik í síðasta leik með honum, voru einhverjar vangaveltur hvort hann tæki strax aftur leik, eða hvernig sáuð þið þetta?
„Við skoðuðum atvikið, en það voru engar vangaveltur um hvort hann ætti að dæma í þessari umferð. Það er vinnuregla hjá okkur að skoða mjög vel alla leiki, höfum sennilega að aldrei gert meira af því en núna eftir að við fórum í ráðningu á Gunnari Jarli og Frosta Viðari, þeir komu inn í hlutastarf hjá okkur varðandi þjálfun á dómurunum. Við erum að vinna mjög þétt saman ásamt þolþjálfara dómarana, fjögurra manna teymi sem fundar oft í viku. Við höfum sennilega aldrei skoðað eins mikið af klippum og núna, og við fórum yfir þetta atvik og ræddum við Twana eftir leikinn á fimmtudaginn."
„Dómari getur gert stór mistök, en við erum ekki að fara taka hann af leik í næstu umferð á eftir af því að ég þekki það sjálfur, eftir að hafa dæmt í þessari deild og gert ótal mistök á mínum ferli, að maður gat ekki beðið eftir því að komast inn á völlinn aftur, aðallega til að sýna og sanna fyrir sjálfum sér að maður væri betri en þetta. Maður lærir af mistökunum og kemur ennþá einbeittari inn aftur. Hins vegar, ef við förum að sjá eitthvað mynstur að menn séu að dala 2-3 leiki í röð, þá bregðumst við því og mögulega setjum þá menn á lægra 'level' á meðan þeir eru að ná vopnum sínum. Það er þá alltaf gert í miklu samtali við dómarana. En við höfum ekki farið þá leið að ein risastór mistök þýði að dómarinn dæmi ekki í næstu umferð. Ég held að þjálfarar almennt sýni því skilning. Þeir eru kannski með lykilleikmann í sínu liði sem gerir slæm mistök, en ég er ekki endilega viss um að hann sé ekki í liðinu í næsta leik, en ef hann fer að sýna frammistöðu undir pari 2-3 leiki í röð, þá mögulega er hann settur á bekkinn. Ég held að fæstir þjálfarar taki ákvörðun út af einhverjum einum mistökum, og þetta er svolítið eins með dómarana."
Ósammála ummælunum og harmar mistökin
Er möguleiki að þessi ummæli verði tekin til umfjöllunar hjá KSÍ?
„Ég ræð því ekki sjálfur, það er nefnd innan KSÍ sem tekur ákvarðanir hvort að ummælum sé vísað til aganefndar. Við munum ábyggilega ræða það í dag. Þegar við höfum séð ummælum vísað áfram, þá er það þegar verið er að efast um heiðarleika okkar og svona. Mér fannst Davíð meira vera að segja að við værum ekki nógu góðir, og hann má hafa sína skoðun á því, ég er bara ekki sammála þessu. Hann talar um að leikmenn séu gagnrýndir, ég held að dómarar séu alveg gagnrýndir líka. Við fögnum allri gagnrýni sem kemur til okkar og við getum grætt á, við höfum aldrei skorast undan því og munum ekki gera það."
„En hjálp frá gula liðinu... það má túlka það þannig að þessi mistök sem við (dómararnir) gerum þarna hafi mögulega haft áhrif á úrslit leiksins, ég ætla ekki að tjá mig neitt um það. En hjálp frá gula liðinu, ég er algjörlega ósammála því. Það urðu stór mistök, ég ætla ekki að neita því og við hörmum það."
Fullt af frábærum ákvörðunum
Er eitthvað sem þú ert búinn að vera sérstaklega ánægður með í dómgæslunni í sumar?
„Það er skrítið að segja það í dag, en ég hef verið alveg ótrúlega ánægður með aðstoðardómarana. Því að þó að við séum mögulega að sjá tvær mjög slæmar ákvarðanir í gær - á eftir að skoða betur atvik upp á Skaga - þá eigum við svo mikið af klippum af frábærum ákvörðunum hjá þeim. Við sem höfum fylgst með fótbolta þar sem er VAR, þá sést hvað þetta er ógeðslega erfitt oft á tíðum. Ég held að fólk átti ekki sig á því hvað þetta getur verið erfitt starf. Þeir hafa heilt yfir staðið sig frábærlega í sumar."
„Svo finnst mér ákvarðanatökur dómarana í kringum vítateigana hafa verið miklu betri heilt yfir núna, og einbeitingin miklu meiri, heldur en eftir fyrstu 8-9 umferðirnar í fyrra," segir Þóroddur.
Athugasemdir