Steven Caulker og möguleg koma hans í Stjörnuna var til umfjöllunar á fimmtudag eftir að Albert Brynjar Ingason sagði, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, frá heimsókn enska leikmannsins á Samsungvöllinn þá um kvöldið.
Caulker var á vellinum með Þórarni Inga Valdimarssyni sem er verkefnastjóri fótboltadeildar Stjörnunnar. Garðbæingar hafa verið í viðræðum við Caulker um að ganga í raðir liðsins þegar glugginn opnar í júlí.
Jökull Elísabetarson. þjálfari Stjörnunnar, var spurður út í Caulker eftir leikinn gegn KA.

„Ég er ekki alveg viss, en ég myndi halda að það mætti búast við tíðindum, annað hvort af eða á, líklega á næstu dögum eða tveimur vikum," sagði Jökull.
Caulker er 33 ára miðvörður sem lék með Keciörengucu í tyrknesku B-deildinni í vetur. Hann var á sínum tíma leikmaður Tottenham og kom á láni til Liverpool í hálft tímabil. Á sínum tíma lék hann einn landsleik fyrir England og er í dag landsliðsmaður Síerra Leóne.
Athugasemdir