Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: City er orðað við 500 leikmenn í hverjum glugga
Ederson, Guardiola og Ortega
Ederson, Guardiola og Ortega
Mynd: EPA
Samningar Ederson og Stefan Ortega, markmanna Man City, renna út næsta sumar.

Ederson var sterklega orðaður við Sádí-Arabíu á nýliðnu tímabili en ekkert varð úr því. Pep Guardiola segir að Ederson og Ortega verði markmenn liðsins á næstu leiktíð.

„Við höfum rætt þessi mál og við munum halda áfram með þessa tvo markmenn. Joan Garcia er mjög góður markmaður en City er orðað við 500 leikmenn í hverjum glugga," sagði Guardiola.

„Hann er leikmaður Espanyol og ég veit ekki hvað gerist, ég heyri frá mönnum frá Espanyol að hann er einstakur markmaður."
Athugasemdir
banner