Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkastur í 10. umferð - Svaraði gagnrýninni með súperframmistöðu
Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Viktor fagnar marki í leiknum.
Viktor fagnar marki í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Smá karatespark.
Smá karatespark.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Var stórkostlegur í hjarta varnarinnar. Skoraði eitt mark og á einn sprett til baka þegar Valdimar er nánast sloppinn einn í gegn. Frábær í dag frá A til Ö. Gaman líka að sjá hann spila með Antoni Loga í hafsentnum," skrifaði Sölvi Haraldsson í skýrslu sinni frá leik Breiðabliks og Víkings.

Þar var hann að skrifa um mann leiksins, Viktor Örn Margeirsson, sem er sterkasti leikmaður tíundu umferðar Bestu deildarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Viktor var algjörlega stórkostlegur þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari í sumar en hann hefur verið svolítið gagnrýndur í sumar. Í Innkastinu í síðustu viku var talað um það hvort að hann verðskuldaði það að vera áfram byrjunarliðsmaður ef Damir Muminovic kæmi til baka þar sem Ásgeir Helgi Orrason hefur komið býsna vel inn.

„Viktor hefur verið gagnrýndur meðal annars í þessu stúdíói hérna undanfarið," sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu í gær.

„Frammistaða Viktors og Tobias var í efsta klassa," sagði Atli Viðar Björnsson í þættinum. „Ég hef aðeins talað um að leiðtogarnir þurfi að stíga upp hjá Blikum og sýna leiðtogaframmistöðu. Mér fannst þeir fá það í gær og til dæmis frá Viktori Erni."

„Hann sýnir algjöra súperframmistöðu, bæði varnarlega og sóknarlega þar sem hann gerir sig gildandi í teig andstæðingsins með því að gera mark."

Það er vonandi fyrir Blika að Viktor haldi svona áfram því það er algjört lykilatriði. Breiðablik er í öðru sæti Bestu deildarinnar með 19 stig, einu stigi frá Víkingi.

Leikmenn umferðarinnar:
9. umferð - Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
8. umferð - Jakob Byström (Fram)
7. umferð - Kjartan Kári Halldórsson (FH)
6. umferð - Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
5. umferð - Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
4. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
3. umferð - Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
2. umferð - Guðmundur Magnússon (Fram)
1. umferð - Rúnar Már Sigurjónsson (ÍA)
Athugasemdir