Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 10:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliðinn talaði hreint út - „Vorum byrjaðir að líta of stórt á okkur"
Fyrirliðinn Ívar Örn Árnason.
Fyrirliðinn Ívar Örn Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA, ræddi breytinguna á KA liðinu í viðtali eftir leikinn gegn Stjörnunni. KA hefur tekið átta stig úr síðustu fjórum leikjum og allt annað að sjá liðið.

Eftir tapið á móti Fram í bikarnum, hvað gerðist?

Lestu um leikinn: KA 1 -  1 Stjarnan

„Við bara tókum okkur saman í andlitinu, þetta var ekki flóknara en það. Hver og einn leikmaður þurfti að líta í spegil og við fórum bara í grunninn. Við vorum byrjaðir að líta of stórt á okkur, örugglega svipað og mörg lið hafa lent í. Við erum bestir og svo erum við verstir þegar við erum sjálfum okkur verstir. Þetta er bara grunnvinnan, menn þurfa að hlaupa til baka, þurfa að sinna varnarvinnunni, ef við gerum það þá vinnum við boltann í betri stöðum, hærra á vellinum og þá skorum við fleiri mörk. Það bara segir sig sjálft. Við bara gleymdum þessu (grunngildunum), ætluðum að vera einhverjir lúxusleikmenn og KA er bara ekki þannig félag, við þurfum að leggja inn vinnuna," sagði fyrirliðinn.

KA er með tólf stig, sjö stigum meira en á sama tímapunkti í fyrra. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á liðinu eftir tíu umferðir.

„Ég er ánægður með stöðuna, ég sagði í mörgum viðtölum að veturinn var erfiður, vorum með 9-11 menn meidda, misstum góða leikmenn og áttum erfitt með að fá einhverja í staðinn. Við komum svolítið haltrandi inn í tímabilið og fengum skelli; áttum mikið af erfiðum liðum til að byrja með. Svo erum við búnir að vinna okkur vel út úr þessu. Nú erum við sjö stigum meira en í fyrra eftir jafnmarga leiki, það var ekki frábær staða. Deildin er bara að spilast allt öðruvísi, rosalega jöfn deild og allir virðast geta unnið alla, rosa mikið af heimasigrum. Við erum bara á ágætis stað og þurfum að halda áfram að bæta okkur," sagði Haddi.
Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner
banner
banner