„Þetta byrjaði vel fyrir okkur í dag. Við hættum ekkert, héldum áfram," sagði miðvörðurinn Agnar Bragi Magnússon eftir 4-1 sigurinn gegn Breiðabliki í kvöld. Agnar Bragi átti stórleik í hjarta varnarinnar og skoraði eitt mark eftir horn.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Fylkir
„Við höfum sýnt það í seinni umferðinni að það eru gæði í okkar liði. Við höldum ótrauðir áfram og getum vonandi lyft okkur ofar í töflunni."
„Blikar voru ekki að finna þær glufur sem þeir hafa verið að finna. Andstæðingurinn spilar ekki betur en mótherjinn leyfir. Við erum á réttri braut."
Ásgeir Börkur Ásgeirsson var ekki með Fylki í kvöld vegna meiðsla en án hans sýndi Fylkisliðið stjörnuleik.
„Hann er frábær fótboltamaður og þrátt fyrir að hann hafi ekki verið með í dag þá sýndum við samhug og spiluðum flottan fótbolta."























