Brandon Williams, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur yfirgefið Championship liðið Hull City eftir að hafa aðeins komið einu sinni við sögu fyrir félagið.
Williams, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við Hull í ágúst eftir að hafa verið án félags í 14 mánuði og ekki leikið keppnisleik í 20 mánuði.
Williams, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við Hull í ágúst eftir að hafa verið án félags í 14 mánuði og ekki leikið keppnisleik í 20 mánuði.
Hann kom aðeins inn á sem varamaður í fimm mínútur gegn Blackburn Rovers í ágúst og hefur ekki verið í leikmannahópi síðan í nóvember.
Leiðin hefur legið hratt niður á við frá því að hann yfirgaf Old Trafford árið 2023. Fyrir tæpu ári síðan fékk hann skilorðsbundinn dóm fyrir hættulegan akstur eftir að hafa tekið hlátursgas.
Williams var bara 19 ára þegar hann skapaði sér nafn hjá United og miklar vonir voru bundnar við hann. Alls spilaði hann 51 leiki fyrir United.
Athugasemdir




