Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 09:48
Elvar Geir Magnússon
Víkingur lánar Björgvin Brima aftur í Gróttu
Lengjudeildin
Björgvin Brimi var drjúgur fyrir Gróttu í 2. deildinni.
Björgvin Brimi var drjúgur fyrir Gróttu í 2. deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Björgvin Brimi Andrésson er á leið til Gróttu á láni frá Víkingi en Kristján Óli Sigurðsson úr Þungavigtinni segir frá þessu á X samfélagsmiðlinum.

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, sagði í viðtali á dögunum að líklega færi Björgvin, sem er 17 ára gamall, á lán í Lengjudeildina.

Björgvin kom til Víkings frá Gróttu í október en í fyrra skoraði hann 8 mörk í 20 leikjum fyrir liðið sem komst upp úr 2. deild og tryggði sér sæti í Lengjudeildinni á nýjan leik.

Björgvin Brimi er teknískur leikmaður sem spilar framarlega á vellinum og getur spilað á kantinum eða sem framherji. Bróðir hans er Benoný Breki Andrésson.

„Björgvin Brimi er spennandi leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með. Hann er snöggur, teknískur og getur leyst fleiri en eina stöðu. Við hlökkum til að fylgast með honum í Víkingstreyjunni og þróa hann sem leikmann. Hann er með alla burði til að verða frábær leikmaður fyrir Víking," sagði Kári í október þegar Björgvin var kynntur.


Athugasemdir
banner
banner