„Mér fannst þetta flottur leikur hjá okkur“ sagði Todor Hristov þjálfari ÍBV eftir tap á móti Stjörnunni á Samsungvellinum í dag. Liðið er með 3 stig eftir fyrstu tvo leikina í mótinu og fær Þór/KA í heimsókn til eyja í næstu umferð.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 ÍBV
„Mér fannst við ná að gera margt sem við vorum búin að æfa og okkar stelpur stóðu sig vel“ hélt hann svo áfram.
„Við vissum alveg að við værum að mæta liði sem yrði brjálað eftir að hafa tapað fyrsta heimaleik. Það er erfitt að mæta svona liði en mér fannst að við værum tilbúin í það og við reynum að svara á móti með sömu grimmd og ástríðu til að vinna leikinn.“
Marinella Panayiotou, kýpversk landsliðskona, kom ný inn í hóp ÍBV núna í lok gluggans en hvað mun hún gefa ÍBV: „Hún er öðruvísi en allir framherjarnir sem ég er með. Hún stóð sig vel en hún er bara búin að æfa einu sinni, daginn fyrir leik, með okkur en hún verður alveg pottþétt stór partur af liðinu“ sagði Todor að lokum.
Viðtalið má sjá hér fyrir ofan.






















