Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atla Viðari orða vant - „Þetta er agalegt!"
Varnarleikur ÍA ekki upp á neinn fisk á sunnudaginn.
Varnarleikur ÍA ekki upp á neinn fisk á sunnudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr kláraði vel.
Alex Freyr kláraði vel.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég horfði á þetta nokkrum sinnum áðan og mér varð eiginlega orða vant, þetta er agalegt!" sagði Atli Viðar Björnsson í Innkastinu þar sem 10. umferð Bestu deildarinnar var gerð upp.

Á þessum tímapunkti í þættinum var verið að ræða leik ÍA og ÍBV, sem endaði með 0-3 útisigri, og Atli rýndi í fyrsta mark Eyjamanna.

„ÍBV á innkast einhvers staðar í kringum miðlínu, Skaginn hefur allan tíma í heiminum til að koma sér til baka og koma sér í stöðu. Alex Freyr nær að rölta af miðjunni, inn á fjærstöngina og það er ekki einn Skagamaður sem sér hann eða veit af honum. Varnarlínan öll er að horfa á boltann og miðjumennirnir tveir líka, þetta er hrikalegt! Hann er svo einn, og með svo mikið pláss, eins og þið heyrið er ég næstum því orðlaus. Þetta er skelfilegt," sagði Atli Viðar.

Markið, sem Alex Freyr tók mjög vel, má sjá hér að neðan. Innkastið má svo nálgast þar fyrir neðan.


Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna
Athugasemdir
banner