Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 04. september 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
U21 mætir Færeyjum í undankeppni EM í dag - Leikurinn í opinni dagskrá
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, mætir Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins í dag.

Þetta verður fyrsti leikur landsliðsins í undankeppninni á meðan Færeyingar hafa spilað einn, leik sem vannst gegn Eistlandi í sumar.

Leikurinn er spilaður á Þróttarvelli og hefst klukkan 17:00, en hann verður í opinni dagskrá á Sýn Sport-rásinni og að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net. Ísland heimsækir Eistland á mánudag og verður sá leikur einnig í opinni dagskrá.

Leikur dagsins:

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
17:00 Ísland-Færeyjar (Þróttarvöllur)

Meðfylgjandi eru viðtöl sem voru tekin við U21 landsliðsmenn í gær.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner