Það hitnaði heldur betur í kolunum eftir lokaflautið í markalausu jafntefli hjá Bournemouth gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Jordan Henderson, miðjumaður Brentford og enska landsliðsins, varð mjög reiður og óð í átt að varamannabekk Bournemouth eftir að hafa átt orðaskipti við einhverja aðila þar.
Það leit út fyrir að Henderson ætlaði að vaða í meðlimi úr þjálfarateymi Bournemouth, en Andoni Iraola þjálfari Bournemouth sagði í viðtali að leikslokum að hann teldi Henderson hafa verið að rífast við Junior Kroupi.
Það var mikið af leikmönnum og starfsfólki á milli aðilanna og því brutust engin raunveruleg átök út. Það tók þó nokkra leikmenn til að stöðva Henderson þegar hann óð inn í þvöguna til að byrja með, eins og má sjá á meðfylgjandi myndbandi.
Sjáðu atvikið
Athugasemdir


