Lengjubikarinn heldur áfram í kvöld þegar Íslandsmeistararnir taka á móti ÍR í A-deild.
Víkingur R. fær ÍR í heimsókn í því sem gæti reynst hreinn úrslitaleikur um annað sæti riðilsins.
Víkingur og ÍR eiga bæði sjö stig fyrir lokaumferðina og geta jafnað topplið KR á stigum, en KR-ingar eiga talsvert betri markatölu og eru því svo gott sem búnir að tryggja sér toppsætið.
Keflavík og Haukar eiga svo heimaleiki í B-deild kvenna í Lengjubikarnum.
Keflavík spilar við Gróttu og geta heimakonur haldið fullu húsu stiga með sigri í Nettóhöllinni. Keflavík á sex stig eftir tvær umferðir á meðan Grótta er með eitt stig.
Haukar taka að lokum á móti ÍA þar sem bæði lið munu sækjast eftir sigri. Haukar eiga þrjú stig eftir tvær umferðir á meðan Skagakonur eiga aðeins eitt stig.
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
18:30 Víkingur R. - ÍR (Víkingsvöllur)
Lengjubikar kvenna - B-deild
19:00 Keflavík - Grótta (Nettóhöllin)
19:00 Haukar - ÍA (Knatthús Hauka)
Athugasemdir



