Port Vale 1 - 0 Bristol City
1-0 Ben Waine ('112 )
1-0 Ben Waine ('112 )
Port Vale og Bristol City áttust við í síðasta leiknum í 32-liða úrslitum enska FA bikarsins sem fór fram fyrr í kvöld.
Heimamenn í Port Vale, sem er botnlið League One deildarinnar á Englandi, voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en þeim tókst ekki að skora.
Gestirnir frá Bristol, sem leika í Championship deildinni með það sem markmið að berjast um umspilssæti, voru betra liðið í seinni hálfleik en sköpuðu lítið af færum.
Staðan var því markalaus eftir venjulegan leiktíma og var mikið fjör í framlengingunni. Liðin skiptust á að sækja endanna á milli og úr varð einskonar tennisleikur, en að lokum höfðu heimamenn óvænt betur.
Ben Waine skoraði það sem reyndist eina mark leiksins á 112. mínútu, svo lokatölur urðu 1-0 fyrir Port Vale sem fer áfram í 16-liða úrslitin.
Port Vale fær úrvalsdeildarlið Sunderland í heimsókn í næstu umferð og verður leikurinn spilaður næsta sunnudag.
Til gamans má geta að Port Vale sló einnig Bristol Rovers úr leik á leið sinni í 16-liða úrslitin.
Athugasemdir


