Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   mið 07. nóvember 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Luka Kostic: Held þetta eigi eftir að gleðja hann mikið
Luka ásamt Þórhalli sigurvegara í gær.
Luka ásamt Þórhalli sigurvegara í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Guðjónsson hrósaði sigri í Fantasy deild Fótbolta.net í Pepsi-deildinni í sumar. Þórhallur tók í gær á móti verðlaunum sínum sem er ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Úrval Útsýn.

Gamla kempan Luka Kostic starfar á íþróttadeild Úrval Útsýn og hann afhenti Þórhalli gjafabréf fyrir ferðina í gær.

,,Ég held að það eigi eftir að gleðja hann mikið að fara þangað en það verður spurning hvort hann verður glaður þegar hann kemur heim. Hann heldur með Liverpool eins og ég og maður er ekki oft glaður eftir Liverpool leiki," sagði Luka við Fótbolta.net í dag.

,,Hann ætlar að fara á leik gegn Norwich eftir áramót og þá gæti Liverpool verið búið að versla leikmenn. Maður vonar það."

Luka og félagar hjá Úrval Útsýn standa í ströngu í vetur en þeir bjóða upp á margar ferðir á leiki í enska boltanum.

,,Við útvegum miða á alla leiki í úrvalsdeildinni og í ár eru Íslendingar búnir að fara á leiki með fimmtán liðum. Fulham, Everton, Southampton og svo framvegis."

Hér að ofan má sjá viðtalið við Luka í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner