Goðsögnin Bjarni Felixsson hefur fylgst vel með Heimstarameistaramótum í knattspyrnu um langt skeið.
Hann segist vera búinn að sjá alla leiki HM-keppninnar í ár og er mishrifinn.
Hann segist vera búinn að sjá alla leiki HM-keppninnar í ár og er mishrifinn.
,,Þetta hefur verið upp og ofan. Ég er ekki ánægður með fótboltann sem er spilaður í Brasilíu. Það er meira hugsað um manninn en boltann, því miður," sagði Bjarni sem segir spilið ekki vera nægilega gott hjá liðunum.
,,Allir leikmenn fara inn á völlinn með það fyrir augun að taka fyrst manninn og síðan boltann. Í gamla daga þegar ég var að læra fótbolta þá var skylda að hugsa um boltann en ekki manninn. Ef maður gerði það ekki, þá var maður rekinn heim," sagði Bjarni Fel sem segir að þetta sé einhver lína frá FIFA, fyrirfram sett fyrir mótið.
,,Þetta er gert fyrir sjónvarpið. Svo það sé meira fjör og meira hasar. Dómararnir hafa verið afskaplega mislagir í þessari keppni," sagði Bjarni sem er ósammála mörgum um að þetta sé besta Heimsmeistaramótið frá upphafi.
,,HM í Mexíkó 1986 ber af. Þar var besti fótboltinn spilaður og ennþá dag í dag er ég að rifja upp leikinn, Brasilía - Frakkland. Ég held að það sé besti leikur allra tíma," sagði Bjarni sem telur að knattspyrnan beri ósigur á Heimsmeistaramótinu í ár.
,,Á þessu Heimsmeistaramóti hefur verið alltof mikið um fantabrögð. Það hefur verið lenska að leikmenn séu tæklaðir aftan frá. Þetta á ekki að sjást í knattspyrnunni. Því miður þá er það knattspyrnan sem býður ósigur á þessu móti," sagði Bjarni Felixsson sem segist vera hrifinn af þýskaliðinu en hafi þó spáð Argentínu og Brasilíu í úrslit fyrir mótið.
Viðtalið við Bjarna Fel er hægt að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.





















