„Ég er mjög sáttur. Þetta var mjög vel spilaður leikur hjá okkur nema að einu leyti, við gefum tvö mörk," sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Keflavíkur, eftir dramatískan 3-2 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði í dag.
Páll Olgeir Þorsteinsson skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins.
Þetta var fyrsti sigur Keflvíkinga síðan 28. maí. Var ekki léttir að ná sigri í dag?
„Það er alltaf léttir. Við erum ekki búnir að spila illa en við höfum verið að fá mikið af mörkum á okkur. Við náðum að klára þetta í dag."
„Um daginn spiluðum við leik við Fjarðabyggð þar sem færin hefðu dugað til að vinna 3-4 leiki en boltinn verður að fara inn."

Lestu um leikinn: Leiknir F. 2 - 3 Keflavík
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.