„Tékkar eru mjög sterkir og liðsheildin er öflug. Þetta verður mjög erfiður leikur fyrir okkur. Við verðum að eiga toppleik til að vinna," segir varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen.
Á föstudagskvöld er komið að stórleik gegn Tékklandi á Laugardalsvelli.
Á föstudagskvöld er komið að stórleik gegn Tékklandi á Laugardalsvelli.
Sölvi hefur verið að spila í kínversku deildinni.
„Það er spilaður fínn bolti þarna. Leikmenn eru teknískir og þeir eru fínir sóknarlega. Það vantar kannski aðeins upp á skipulag."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.






















