Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   sun 09. nóvember 2025 22:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Lewandowski og Rashford sáu um Celta Vigo
Mynd: EPA
Celta 2 - 4 Barcelona
0-1 Robert Lewandowski ('10 , víti)
1-1 Sergio Carreira ('11 )
1-2 Robert Lewandowski ('37 )
2-2 Borja Iglesias ('43 )
2-3 Lamine Yamal ('45 )
2-4 Robert Lewandowski ('74 )
Rautt spjald: Frenkie de Jong, Barcelona ('90)

Lewandowski skoraði þrennu þegar liðið vann Celta Vigo og færðist nær toppliði Real Madrid í spænsku deildinni í kvöld.

Hann kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu. Celta jafnaði metin en Lewandowski kom Barcelona aftur yfir eftir fyrirgjöf frá Marcus Rashford.

Borja Iglesias jafnaði aftur metin fyrir Celta en Lamine Yamal sá til þess að Barcelona var með forystuna í hálfleik þegar hann skoraði í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Rashford innsiglaði sigurinn þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Rashford. Barcelona spilaði síðustu andartökin manni færri þar sem Frenkie de Jong fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt en það kom ekki að sök.

Barcelona er í 2. sæti með 28 stig eftir 12 umferðir. Liðið er þremur stigum á eftir Real Madrid sem gerði markalaust jafntefli gegn Rayo Vallecano í dag. Celta Vigo er í 13. sæti með 13 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 26 19 3 4 54 22 +32 60
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 26 10 10 6 36 28 +8 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
13 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
14 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
15 Vallecano 25 6 9 10 23 32 -9 27
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 25 3 8 14 16 40 -24 17
Athugasemdir
banner