Varnarmaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson stóð vaktina í vörn Stjörnunar gegn sínu gamla liði ÍBV í dag.
Íslandsmeistararnir unnu 2-0 sigur og hefur Brynjar því dvöl sína hjá félaginu vel þar sem liðið hefur ekki enn fengið á sig mark.
Íslandsmeistararnir unnu 2-0 sigur og hefur Brynjar því dvöl sína hjá félaginu vel þar sem liðið hefur ekki enn fengið á sig mark.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Stjarnan
„Maður var minntur á það í dag af hveru það hata allir að koma til Eyja. Þetta var mjög erfiður leikur, þeir voru fastir fyrir og þéttir en mér fannst við hafa stjórn á leiknum allan tímann," sagði Brynjar.
„Við vorum mjög vel skipulagðir og héldum því. Við náðum að spila boltanum þokkalega á milli og nýttum þessi færi sem við fengum. Við hefðum jafnvel getað skorað fleiri."
Brynjar Gauti
„Manni líður sjaldan betur en á Hásteinsvelli svo það var gott að komast hérna nánast heim aftur."






















