Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
   fös 10. desember 2021 21:55
Arnar Laufdal Arnarsson
Óskar Hrafn: Ætlum okkur að verða betri í öllu sem við gerum
Sáttur með spilamennskuna í Bose-mótinu
Sáttur með spilamennskuna í Bose-mótinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úrslitaleikurinn í Bose-mótinu fór fram í kvöld er Breiðablik unnu Víking Reykjavík með sannfærandi 5-1 sigri. Markaskorarar Blika voru Kiddi Steindórs, Gísli Eyjólfsson, Höggi Gunnlaugs, Anton Logi og Benedikt Waren en mark Víkinga skoraði Adam Pálsson úr vítapsyrnu.

"Ég er bara mjög ánægður með spilamennskuna og finnst hafa verið góður stígandi í þessum þremur leikjum sem við höfum spilað í þessu móti þannig ég er bara sáttur" Sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson í viðtali eftir leik.

Nýr leikmaður Blika, Dagur Dan Þórhallsson sem kom frá Mjondalen hefur verið öflugur í sínum fyrstu leikjum í grænu treyjunni.

"Já Dagur hefur komið rosalega sterkur inn og hefur smallið inn í þetta frá fyrsta degi, þetta er leikmaður sem passar inn í það sem við erum að reyna gera, gríðarlega öflugur leikmaður, duglegur, frábær fótboltamaður, samviskusamur og mikill karakter."

Eftir að hafa lent í 2. sæti á Íslandsmótinu í sumar, eru Blikarnir að æfa meira en undirbúningstímabilið í fyrra?

"Við ráðumst bara í hverja viku og reynum að verða betri í öllum þáttum leiksins sama hvort það sé varnarleikur, sóknarleikur, transition eða föst leikatriði. Við reynum bara að leggja okkur fram 100% á hverjum einasta degi þannig það er bara eins og það er og við ætlum okkur bara að verða betri í öllu sem við gerum."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en þar talar Óskar um stöðu Ísaks Snæs Þorvaldssonar, leikmannamál, 8 liða mót í Portúgal sem og margt fleira.
Slapp
Athugasemdir
banner