Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   fim 11. júní 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Ísland - Tékkland
Viðar Örn: Væri þrjú ár að læra kínversku
Icelandair
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég var tíu tíma frá Kína til Frankfurt og þar var fluginu til Íslands frestað. Þaðan fórum við til Parísar og í morgunflug svo þetta voru fimmtán eða sextán tímar," segir Viðar Örn Kjartansson um ferðalag sitt frá Kína til Íslands.

Viðar og Sölvi Geir Ottesen leika með Jiangsu Sainty í Kína en þeir eru í íslenska landsliðshópnum sem mætir Tékkum á morgun. Viðar segist vera í góðu standi fyrir leikinn á morgun.

„Ég er í mjög góðu standi. Tímabilið er búið að vera mjög fínt hjá mér so far. Auðvitað vill maður skora í hverjum einasta leik en það er ekki búið að ganga. Ég er samt sáttur við tímabilið og er klár í slaginn."

Viðar segir fyrstu mánuðina í Kína hafa verið fína. „Ég bý í frekar flottu hverfi en ef þú keyrir aðeins lengra þá er hverfi sem er óhreinna. Maturinn og léleg ensku kunnátta kemur manni líka á óvart."

„Ég er með túlk sem hjálpar mér ef ég er í vandræðum. Ef þú ferð í taxa þá verður þú að vera með addressu á blaði á kínversku. Sumir skilja ekki orð í ensku og það kemur manni á óvart,"
segir Viðar en hann ætlar ekki að læra kínversku.

„Ég væri svona þrjú ár að því ef ég myndi hella mér í það núna. Eitt orð er kannski með fimm eða sex merkingar svo við getum gleymt þessu í bili."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner