Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
Hildur Antons: Við þurfum að vera leiðinlegar
Emilía Kiær: Að við höfum ekki unnið stærra
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
   fös 11. júlí 2014 22:47
Arnar Daði Arnarsson
Ingó: Víðir er grjótharður
Mynd: Hamar
Ingólfur Þórarinsson þjálfari Hamars í 3.deildinni gat loksins fagnað fyrsta sigri í deildinni í níunda leik liðsins. Hamar unnu öruggan 6-2 sigur á ÍH á útivelli en ÍH er í 2.sæti deildarinnar.

,,Þetta er mjög gaman. Það er búið að vera þungt í mönnum. Við höfum oft verið nálægt því að vinna leiki en aldrei náð því og þetta er því mikill léttir og hjálpar mikið í klefanum," segir Ingólfur sem var settur á bekkinn fyrir leikinn en kom inná sem varamaður seint í leiknum.

,,Við gerðum ákveðnar breytingar og Víðir kemur inn sem manager og hann er mjög klár og gerir margar sniðugar breytingar sem hristir upp í hópnum og stundum er það sem þarf. Víðir er toppmaður," segir Ingó en Víðir gerði athyglisverða breytingu með því að setja útileikmann í markið og var með tvö markverði á bekknum.

,,Kjartan sem var settur í markið er nú nokkuð góður í markinu og hann hefur verið í marki á nokkrum æfingum. Það hefur vantað sjálfstraustið í markmennina hjá okkur. Það hefur lekið mikið inn og þeir hafa verið óheppnir. Víðir prófaði að setja útileikmann í markið og Kjartan stóð sig mjög vel og var nokkuð öruggur í því sem hann var að gera. Það er spurning hvort hann vilji fara byrja æfa mark 23 ára."

Það voru athyglisverð tíðindi í vikunni þegar Víðir Leifsson fyrrum knattspyrnuleikmaður var ráðinn knattspyrnustjóri 3.deildarliðs Hamars. Hann stillti því upp liðinu í kvöld og stjórnaði því af hliðarlínunni með svona líka góðum árangri.

,,Ég tók við þessu sem þjálfari, leikmaður, manager, stilla upp liðinu og keyra á æfingar, ég er hreinlega í öllu. Ég hugsaði með mér hvað þyrfti núna til að hrista upp í liðinu og mér fannst vanta einhvern sem kæmi og stillti upp liðinu og er grjótharður og þá datt mér í hug Víðir, sem er grjótharður," sagði Ingó í samtali við Fótbolta.net.

Viðtalið er hægt að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner