Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Þór í kvöld.
Pablo Punyed skoraði rándýrt mark undir lok leiks sem gerði það að verkum að Stjarnan fór með þrjú stig í nesti með sér heim.
,,Sanngjarn held ég miðað við færin sem við fengum í þessum leik. Þetta var frábært mark hjá honum sem tryggði þessi þrjú stig og hann er búinn að æfa þetta dálítið mikið strákurinn og loksins sett'ann," sagði Rúnar Páll.
,,Er þetta ekki annar leikurinn sem við skorum á lokasekúndunum? Mjög sætt."
Stjarnan mætir Inter í undankeppni Evrópudeildarinnar í lok ágúst en Rúnar segir þó ekki erfitt að mótivera menn í aðra leiki.
,,Það var ekkert erfitt að mótivera menn í svona leik. Þetta snýst um hugarfar og hvað menn vilja og hvort menn vilja vera í toppbaráttunni eða ekki. Þetta snýst um að upplifa sömu stemmingu á næsta ári ef við komumst í Evrópusæti og að mótivera menn í þetta moment," sagði hann ennfremur.






















